12janúar

Síðasta bloggið

Jæja, þar sem ég er að vinna í því að kópía öll bloggin mín og kommentin sem ég fékk á þau ákvað ég að skrifa síðasta bloggið til að hafa einhvern endi á þessu.
Það er alveg komið hálft ár síðan ég kom, alveg fáránlegt hvað tíminn er búinn að vera fljótur að líða, ég er búin að fara tvisvar til Svíþjóðar síðan og var að vinna í Skaftafelli í sumar eftir að ég kom heim.
Ég man bara ekkert hvað ég bloggaði um síðast en ég man að það var ýmislegt sem gerðist eftir að ég skrifaði það og áður en við stigum upp í flugvélina.  Ég, Auður og Villi hittum Laurel, Jasmin og Camille hjá Villa, pöntuðum ís og kók í colmado og jasmin gaf okkur gjöf... cheetos, haha hún hefði ekki geta gefið okkur betri gjöf. Svo lágum við bara og spjölluðum. Það var ótrúlega skrítið að ímynda sér að við ættum ekki eftir að hitta þessar stelpur í hverri viku. Og alla hina krakkana.

Síðasta kvöldið mitt úti man ég að ég kom heim og þá var partur af fjölskyldunni í heimsókn, ég fékk nachos og gos.. og þau höfðu búið til dvd disk handa mér, með mynd af landinu og svo ef ég klikka á einhverja bæi þá koma upp myndirnar síðan við vorum á þeim stöðum. Ég samt trúði því ekki að ég væri að fara, að árið væri búið. Þetta var ótrúlegt, man hvernig fyrstu þrír mánuðirnir ætluðu aldrei að líða, það var eins og ég væri búin að vera þarna heila öld. En svo flaug tíminn bara eftir áramótin. Daginn sem við fórum keyrði fjölskyldan mín mig uppá flugvöll, þar sem við hittum Auði og Óla. Af einhverjum ástæðum hafði fólkið áhyggjur af því að við (þá sérstaklega ég og Auður) ættum eftir að lenda í vandræðum á leiðinni, að við ættum eftir að týna flugmiðum eða vegabréfum, hvernig svo sem þau fengu þá hugmynd, en Óli átti að passa okkur (en ekki hvað). Auður var viðbúin öllu með snýtubréf með mynd af svínum. Svo þegar við vorum komin í gegn hringdi Jasmin til að kveðja okkur. Við vorum ótrúlega heppin þegar við pöntuðum sætin, sögðum öll í einu hvar við vildum sitja.. og það þurfti ekkert að rífast um það, vildum öll sitja á sitthvorum staðnum =).

Ég sé reyndar eftir því að hafa ekki verið með dagbók líka, það var svo margt sem ég sagði aldrei í blogginu, haha sérstaklega þegar mér leið illa.. vildi ekki að fólk færi að hafa áhyggjur :) Jenny hætti að tala við mig þarna einn mánuðinn og pabbinn var að gera mig geðveika og fyrsta kvöldið sem ég var þarna úti þegar tveir náungar voru með byssur og beindu þeim að Jenny. Þeir voru að reyna að stela bílnum, það var svakalegt. Man að ég hringdi í Aldísi og vissi ekkert hvað ég ætti að gera. Ætlaði nú ekki heim eftir einn dag. En þetta lagaðist allt saman og við Jenny vorum aftur orðnar vinkonur áður en ég fór heim =).

Núna skil ég ekki hvernig mér tókst að fara upp í flugvélina vitandi það að ég yrði ár í burtu. En þetta var besta ákvörðun sem ég hef tekið, ég á svo margar minningar og hlæ ennþá upphátt af ákveðnum augnablikum. Jasmin kemur svo líklega í heimsókn um páskana sem verður æði.

En nú læt ég þetta gott heita, ætli mér detti ekki í hug fullt af hlutum næstu daga sem mig langar til að bæta við :)

- Adiós





12. janúar 2010 klukkan 14:52
Guðrún Eydís
Engin athugasemd
23maí

Casi Ya O.o

Ahh ég er svo góð sko.. sit hérna klukkan korter yfir þrjú um nótt að skrifa blogg handa ykkur;) indælt... já ég hef svosem brallað hitt og þetta síðan síðast.

Fór til Jarabacoa með fjölskyldunni eina helgina... sem er aðeins upp í fjöllunum þannig að það var kaldara þar en hérna í höfuðborginni.. það var æði sko, ég sat úti á stuttbuxum og bol og mér leið þæginlega.. og sturturnar heitar O.o Mér tókst samt að detta úr sófanum og lenda á bakinu frekar illa... endaði á því að þurfa að verkjatöflu til að geta sofnað og gat ekki staðið upp eða setið eðlilega í 2 daga. Ég vil samt meina að þetta hafi ekki verið mér að kenna, en ég get bara ekki útskýrt hvað gerðist svona í gegnum netið.. it takes a little bit of acting til að útskýra þetta..
En ég fór samt í riverrafting sem var best sko.. bara nokkrir marblettir.. aftur.. ekki mér að kenna. Rússinn sem sat við hliðiná mér sló alltaf árinni í mig. En Oh well...

Svo helgina eftir það var afmæli hjá tveimur skiptinemum hérna, ótrúlega gaman að hitta svona marga skiptinema í einu, enduðum kvöldið sitjandi út á götu að spjalla, svona á meðan fólk var að reyna að koma sér heim..:p og daginn eftir fórum við Villi í strandhúsið með Jenny og vinum hennar, ahh magnað hvað ég er hætt að kippa mér upp við það að það séu flugur á matnum mínum.. ótrúlegt, ég veit.. Svo fengum við ekkert svefnpláss svo við sátum í litla óþæginlega sófanum og horfðum á sjónvarpið næstum því alla nóttina, Jenny svaf meira að segja bara úti, ég sofnaði eitthvað með lappirnar upp á einhverju borði svo vöknuðum við náttla með fáránlega verki allsstaðar og þegar fólkið fór á ströndina fengum við okkur bara almennilegt svefnpláss.
En um kvöldið þá sátum við þarna, og svo sé ég ROTTU bara labba inní eldhús og ég svona.. ööö Villi, hvað gerum við? Endaði á því að kalla eitthvað rotta! en nei ég fékk ENGIN viðbrögð, bara virkilega, ég var algjörlega hunsuð. Svo þegar Jenny kom niður þá spurði ég hana bara, hvað eigum við að gera ef það er rotta inní eldhúsi.. og hún bara hmm..ekki fara þangað. Svo ég bara ókei, settist aftur niður.. passaði samt setja lappirnar ekkert niðrá gólf eftir þetta. En um miðja nótt heyri ég einhvern strákinn öskra rotta! þegar hann var að ná í eitthvað inní skáp.. það er svona að hlusta ekki á mig..;) hehe..
Fengum líka heimsókn frá froski, sem er greinilega einhver ofurhetja og stökk uppá loftið inní stofu og var þar þangað til hann datt niður. .. Hver þarf dýragarð ef maður hefur strandhúsið?!?!

Ég veit ekki hvort ég hef minnst eitthvað á rafmagnið hérna.. það er semsagt ekki til staðar! Þetta skiptist alveg eftir svæðum hvenær rafmagnið fer, eins og hérna hjá mér þá fer það um sjö leitið á morgnanna og kemur aftur svona um hádegið.. oftast þ.e.a.s. Kemur fyrir að það sé bara ekkert að flýta sér. Fer líka oft aftur af um fjögurleitið og kemur ekki aftur fyrr en um átta eða seinna... það er alveg ástæða fyrir því að ég sé búin að klára Sudoku bókina mína... Svo um daginn þá sofnaði ég eftir skóla, vaknaði um hálf fjögur þegar rafmagnið fór, svo klukkan fjögur var ég alltí einu orðin ein heima, og ég svona nú.. hvað geri ég þá. Það var of dimmt til að lesa eða gera nokkurn skapaðan hlut og ég er ekki með lykla svo ég get ekki einu sinni opnað stálhliðið til að komast út. Svo ég sat í myrkrinu með ipodinn minn þangað til fólkið kom heim um hálf átta... Haha bróðir minn fékk smá skammir fyrir að skilja mig eina eftir heima í rafmangsleysinu.

Annars held ég að þetta verði síðasta bloggið mitt héðan, efast um að ég eigi eftir að blogga eitthvað meira:) Ahh ég trúi ekki að ég sé að koma heim eftir smá O.o shit sko. Haha eins og allir skiptinemar segja, það var auðveldara að fara frá Íslandi, af því að maður vissi að maður ætti eftir að koma aftur.. en ég á aldrei aftur eftir að koma aftur hingað og vakna óeðlilega snemma til að fara í skólann og klæða mig í skólabúning á hverjum morgni (ahh hlutur sem ég á EKKI eftir að sakna, þoli ekki þennan búning..  hvað þá köldu sturtuna). Eða fara í Acropolis með krökkunum að gera ekki neitt í marga klukkutíma. Og þessi hópur af skiptinemum á aldrei eftir að vera samankominn aftur =O ómæ..og fullt af fleiri hlutum .. haha hlakka samt sjúklega til að koma heim og hitta ykkur öll:D

Við sjáumst fljótlega=)

GuðrúnEydís

23. maí 2009 klukkan 07:23
Guðrún Eydís
27apríl

27. Apríl =D

Heyriði já.. ég er semsagt ennþá á lífi ef að einhver hefur verið að velta því fyrir sér =)

Um síðustu helgi fór ég til Cabrera með íslendingunum.. En Veronika á heima þar og við fengum afnot af íbúð fyrir ofan húsið hennar:) .. ókeypis.. ótrúlega næs. Byrjuðum daginn snemma á því að missa af níu rútunni til Cabrera á föstudeginum. En þá var bara beðið eftir eitt rútunni.. röltum aðeins um ghettóið og keyptum kók og Doritos:) svo lögðumst við bara á gólfið á rútu stöðinni þangað til rútann okkar færi.
Svo tók bara við rúmlega fjögurra tíma rútferð með tilheyrandi leiðindum og fíflaskap.



En Lína og Veronika tóku á móti okkur í Cabrera og við eyddum bara restinni af deginum í að rölta um, borða ís o.fl og svo eldaði mamma hennar pizzu handa okkur.
Islendingar eru náttla svo góðir vinir að spurningar eins og ertu þrolli? ertu vitlaus? ertu þroskaheftur? áttu bágt? voru einstaklega vinsælar:) (svona fyrir áhyggjufulla foreldra og ættingja þá er þetta svona smá had to be there moment, og enginn var lagður í einelti .. nema kannski Óli en það er annað mál:p)



(já, þarna sváfum við sex, hvernig okkur tókst það skil ég ekki:p)

Svo vöknuðum við Auður eeeldsnemma á laugardagsmorguninn, þegar ég segi eldsnemma það meina ég meira svona að við vöknuðum á undan hinum. Svo við skeltum okkur í göngutúr um bæinn og keyptum okkur frosted flakes og gatorate (alltaf í hollustunni sjáiði til) en þessi göngutúr kostaði mig 2 stóóórar blöðrur á milli tánna eftir flip flops skónna sem eftir rúmlega ár ákváðu allt í einu að byrja að meiða mig. En það gerði það að verkum að ég neyddist til að vera í Kawasaki skónum það sem eftir var helgarinnar.

En svo svona þegar fólk var vaknað þá skeltum við okkur í ánna. Þar sem ofurhugarnir Auður og Veronika hoppuðu niður fossinn. Tókum helling af myndum á vélina hans Villa sem ég bíð spennt eftir að sjá (Villi þetta er hint!). Á leiðinni til baka ákvað ég að taka smá fellu... mér fannst ekki nóg að vera með 2 blöðrur sem gerðu mér alveg nógu erfitt fyrir að labba heldur ákvað aég að snúa á mér öklann líka og fá sár á hnéð.. Svo maður yrði nú alveg örugglega ógönguhæfur.

En við komum við í bakaríi, sem var aðeins of girnilegt, keyptum hálft bakaríið þar.. fléttubrauð, kleinuhringar með sykri ennþá heitir ur ofninum, jólakaka, terta o.s.frv. hrææódýrt:D Bakaríið vill samt greinilega hafa jafnvægi á hlutunum og þar sem maturinn var svona góður var djúsinn einstaklega vondur.

En um kvöldið borðuðum við á veitingastað, þar sem eigandinn átti heima á íslandi í einhvern tíma:) ekki alveg eitthvað sem maður býst við í litlum bæ út á landi í Dóminíska lýðveldinu:p Geðveikt góður matur og sjúúklega ódýr!=)

Hmm á sunnudeginum þurftum við Auður að koma okkur heim, en restin ákvað að skrópa í skólann á mánudeginum líka. En þar sem ég var að fara í ferð með fjölskyldunni á miðvikudaginn þurfti ég að mæta þessa 2 daga í skólann.


Á miðvikudaginn lagði ég svo af stað með fjölskyldunni í ferð. En þau vilja að ég sjái helst allt landið áður en ég fer aftur heim. Þau eru æði:p Byrjuðum á því að koma við í strandhúsinu og skilja töskurnar eftir, svo fórum við til Los Haitises, sem er þjóðgarður hérna. Vorum á bát og stoppuðum á einhverjum eyjum og skoðuðum myndir sem indjánarnir teiknuðu á veggina o.fl. Virkilega svalt.





Skoðuðum líka einhvern garð þar sem við tókum einhverjar myndir, kostar alveg helling inn fyrir túrista en ekkert fyrir Dóminíkana (fólk þurfti samt smá sannfæringu um að ég væri dóminíkani, og eftir það var mér sagt að segja bara alltaf setningu sem er soldið svona is it because I'm black.. nema bara sett ljóshærð í staðin)



En á föstudeginum fórum við svo til Bavaro sem er geðveikur túristastöðum með geeeðveikri strönd. Við vorum á íbúðarhóteli sem var með sundlaugarsvæði og öllu tilheyrandi. Ég eyddi svo helginni á ströndinni og sundlauginni. Á föstudeginum kom vinur mömmunar, þeim finnst nauðsynlegt að taka það alltaf fram að hann er hommi.. en um kvöldið fórum við Jenny með honum á eitthvað svona mr universo dæmi með honum.
En ég fór aftur í parasailor, nema í þetta skiptið með Jenny og svo fórum við á eitthvað sem þau kalla Banana, hahah vá það var best! maður hoppar og skoppar og þarf að halda sér í til að detta ekki en pointið er að reyna að láta aðra detta:p



En við komum svo heim í gær, og þar beið mín pakki (síðasta Twilight bókin, og djúpur frá Svíþjóð, takktakk!!=D) og annar pakki er á pósthúsinu sem ég geri ráð fyrir að komi frá Selfoss en ég þarf að fara að ná í hann fljótlega:p

Um næstu helgi er ég svo að fara til Jarabacoa, aftur með fjölskyldunni. Og FÓLK! skólinn minn FÆRÐI bara 1maí.. það er ekkert hægt að færa hann sísvona.. jiiidúddamía. Þannig að ég fer í skólann á föstudaginn en fæ frí á mánudaginn.. skrítna fólk :p

Annars hlakka ég til að sjá ykkur og ég skal reyna að blogga aftur innan mánaðar;)

Adios



27. apríl 2009 klukkan 18:29
Guðrún Eydís
10 athugasemdir
12apríl

No me importa...

Tími á blogg? ég veit ekki.. einu sinni í viku minn rass:p
hehe, annars veit ég ekki hvað ég á að segja ykkur, ég er búin að setja einhver nokkur albúm inná facebook þó að leti hafi komið í veg fyrir að ég hafi tilkynnt það hér, sýnist langflestir vera komnir með facebook aðgang:p

Annars skilst mér að páskarnir séu núna.. af einhverjum ástæðum tek ég sem mest lítið eftir því. Veit af því að það er frí í skólanum.. Semana Santa ftw :) En ég er bara búin að hanga heima á meðan flestir fara eitthvert, á ströndina eða upp í fjöll og eyða vikunni þar.
Fór samt til Isla Saona, sem er eyja rétt hjá landinu, á laugardaginn var með AFS. Það var ekkert ennað en frábært, fórum í einhverum bát sem var með svona netahengirúmsdæmi þannig að maður lá bara yfir sjónum, svo var tónlist og drykkir og við eyddum svona klukkutíma í að komast út á eyjuna. Svo var bara sólbað, sandkastalabygging og læti þangað til við snerum við og fórum með litlum bátum að taka myndir af krossfiskum. Tókum einnig upp Baywatch video sem ég mæli endilega með að þið tékkið á á facebook, og eins og í öllum öðrum videoum sem ég á fer Óli á kostum (ath einnig hitt myndbandið þar sem Óli er í aðalhlutverki).  

Ohh svona til að sýna hvað dóminíska lýðveldið er spes.. vorum á rúntinum um daginn (reyndar um kvöldið, en það er annað mál).. íslendingarnir, Maisie og Diego. og það var semsagt fólk sem hafði tekist að hvolfa bílnum sínum.. í staðinn fyrir að hringja á lögguna og / eða sjúkrabíl var bara farið út úr bílnum, hjálpast að og bílnum SNÚIÐ við og ya.. málið leyst.. svo fer fólkið bara aftur inní bílinn og keyrir sína leið.. verði þeim að góðu:p

Annars er ég búin að vera hérna í 234 daga.. magnað 0.o .. þetta er laangur tími, mér finnst samt eins og að allt á íslandi standi bara í stað, á örugglega eftir að fá áfall þegar ég kem til baka=/:p

haha það verður spes að koma heim frá þessu landi, þar sem það er kona sem sér um að elda hádegismatinn, þrífa fötin mín, skúra og sópa, búa til safa, vaska upp o.s.frv... þar sem fólk borðar kjúkling, hrísgrjón og baunir í tonnatali.. og þar sem þau borða mangu, fritos, mofongo, sancocho, kipe, crocketas og ég veit ekki hvað og hvað
þar sem litlir strákar frá Haiti standa við öll gatnamót og betla og þrífa framrúðuna þína fyrir 20 kall, þar sem rúðuþurrkur eru seldar á götunum, og símainneignir, ávexti, nammi, ostar, hattar, sólgleraugu og þess vegna skór.. you name it..
Þar sem hitinn er yfir 25 stig á daginn, og í skólanum eru engar rúður og skólaborðin útúrkrotuð, skólabúningur og skólinn búinn klukkann eitt á daginn.
Þar sem maður fer í sturtu tvisvar, þrisvar eða fjórum sinnum á dag
Maurar, kakkalakkar og moskítóflugur.

Annars ætla ég að segja þetta gott í bili ;)
Gleðilega páska:D
12. apríl 2009 klukkan 02:20
Guðrún Eydís
7 athugasemdir
15mars

Aaaaawesome!!

Sælt veri fólkið ..=)

Þið segið það:p.. Af hverju er alltaf svona erfitt að byrja að blogga?! Það er einstaklega erfitt að vita hvernig maður á að byrja:/

En allavega þá byrja ég bara á síðustu helgi, fór semsagt í AFS ferð á laugardeginum. Mættum heim til Ailsu sem sér um að skipuleggja þessar ferðir klukkan 7 um morguninn. Það kom öllum á óvart að íslendingarnir mættu fyrst á staðinn 0.o fyrst ég með Villa og Óla og svo kemur Auður fimm mínútum seinna með Laurel. Svo var bara farið í rútuna og við fórum í Los 27 charcos, og svona fyrir þá sem ekki vita þá eru þetta fossar. Þá var næsta verkefni að reyma skóna vel, finna sér björgunarvesti og hjálm (allir voða sætir með gulu hjálmana sína sko =D)

 

Svo byrjuðum við bara að labba, löbbuðum í svona klukkutíma og þá var byrjað á tilgangi ferðarinnar. Að hoppa niður fossana, fórum líka í svona rennibrautir þar sem fossinn ber þig bara niður.. voðalega svalt allt saman! Stukkum niður .. tjahh .. ég man ekki hvort þeir sögðu 15 metra eða 20 metra háan foss.. Svo fylgdum við bara ánni, þangað til við vorum búin með 27 fossa:p Fengum að borða og svo var bara farið heim, með þónokkra marbletti, bólgna ökkla og putta ég veit ekki hvað og hvað.

Haha þessi ferð kostaði samt sitt og ég var veik alla síðustu viku.. Svo var það svo frááááábært að komast út á föstudaginn, hitti Villa, Óla, Auði og Rúnu og hengum eitthvað í Acropolis áður en ég þurfti að fara. Fór samt í bíó með Villa, Óla, Jenny og vinkonum hennar um kvöldið.. My Bloody Valentine.. þvílík vonbrigði!! Haha skruppum svo í keilu eftir á, ég er náttla geðveikt pró í keilu.. lenti í öðru sæti;) með 3 fellur og 2 feykjur.. talandi um snilld sko!:p

Svo í gær fór ég aftur í AFS ferð, í þetta skipti til að sjá hvalina (Y) haha, og okkur sem fannst snemmt að mæta 7 í síðustu ferð þá þurftum við að vera mætt fyrir 5 í gær. Svo klukkan mín hringdi klukkan 3:30 og þá var ég búin að liggja upp í rúmi í tæplega þrjá tíma. Svo mætir maður glaaaðvakandi og sest upp í rútu.. fengum þessar frægu þriggja hæða samlokur sem eru alltaf í ferðum með Ailsu og svo var bara farið að sofa:p
Og þegar við komum til Samana fórum við í einhvern bát og sigldum út á sjó, reeeennblotnuðum útaf ölduganginum og sáum nokkra hvali=) Svo þegar nokkrir voru orðnir það sjóveikir að þeir voru farnir að æla var bara farið til baka og komið við á eyjunni sem ég fór í þarna parasailer-ið síðast. Vorum á ströndinni og fengum að borða og svona þangað til báturinn kom að sækja okkur um fjögur leitið. Þann daginn fórum við heim illa sólbrennd (tók einmitt mynd af því í gær, bara ætlaðar vel völdu fólki sem fær þær sendar á msn undir því skilyrði að þær fara EKKI á netið!) og Óli með ígulker uppí löppinni á sér.. alltaf lærir maður eitthvað nýtt, ég hélt að það væru bara marglyttur sem þyrfti að pissa á:'D .. sögugildið, sögugildið.. það þarf alltaf einhver að fórna sér fyrir það;)

En þegar ég kom heim fékk ég ekki einu sinni að fara í sturtu, ekki einu sinni að skipta um föt, við hlupum bara út og fórum á Hard Rock þar sem var eitthvað Saturday night fever kvöld með Bee Gees og John Travolta eftirhermum.. hahah.. ég viðurkenni alveg fúslega að Bee Gees eigi einhver góð lög.. en þemað þetta kvöld var greinilega það að taka leiðinlegu lögin. Enda fórum við bara fljótlega heim og ég gjörsamlega rotaðist.

En svona til að minnast aftur á matarvenjurnar hérna, þá finnst mér nú bara asnalegt að það sé verið að kommenta eitthvað á íslendinga fyrir að borða allt af lambinu. Ég meina hérna er ALLT borðað af kjúklingnum. Fæ einmitt regluglega þarna dæmið á hananum, þetta sem er þarna undir gogginum. Viðurkenni það samt alveg að mér finnst það frekar gott (A):p Svo eru auðvitað alltaf lappirnar í Sancochinu. Annars hlýt ég nú að hafa fengið eitthvað sérstakt síðan ég bloggaði síðast.. þó ég muni ekki eftir því í augnablikinu:p

Getum svo talað um hafnaboltarhæfileika mína:D það er nefnilega þannig að eftir jól í þriðja bekk er BARA hafnabolti í íþróttum, ég svona man nokkurnvegin reglurnar úr sparkó og kíló svo þetta reddast bara, veit að ég á að hlaupa þegar það er öskrað HLAUPTUHLAUPTU! Ég var samt alveg gríðlarlega sátt þegar ég hitti boltann í fyrsta kasti í fyrsta skiptið sem ég hélt á kylfunni! Haha, og náði næstum því homerun =) En ég er farin að hallast að því að það hafi bara verið beginners luck af því að mér hefur ekki gengið jafnvel síðan.. Hitti samt boltann alveg öðru hvoru.

Heyrðu, svo var ég búin að bæta við tveimur nýjum albúmum á facebook þar sem það er loksins farið að virka, getið séð það hér og hér ;)

Þangað til næst..
Bæjó ;**

15. mars 2009 klukkan 18:54
Guðrún Eydís
11 athugasemdir
01mars

meiri snjó..meiri snjó.. meiri snjó...

Jæja ég trúi ekki að það séu meira en 2 vikur síðan ég bloggaði síðast.
Annars er það bara eins og venjulega.. mest að segja frá helgunum.
Á sunnudeginum eftir síðasta blogg fórum við ágætur hópur til La Vega. Ég, Auður, Óli, Villi og Camille, ásamt pabba mínum og einhverjum vini hans. Á carnavalinu er fullt af fólki klætt í grímubúninga og ganga um með einhverskonar bolta í bandi.. sem þeir lemja svo í rassinn á öllum.. og það er ekkert lítið vont. Þetta er alls ekki mjúkt og þeir lemja alls ekki laust. Systir vinkonu minnar þurfti að fara til læknis af því að hún var svo marinn á öllu lærinu og rassinum.
En svo helgina eftir það var það bara letilíf.. fór þrisvar í bíó=/ Skrapp í Diamond mall á föstudeginum með Villa og Jasmin og svo kom Jenny og við fórum á mynd sem ég held að heiti An American Hunting ooog beint eftir það á Bride wars.. hahah, góður föstudagur:p fór svo á Benjamin Button á laugardagskvöldinu.. mér finnst nú alveg lágmark að hafa pissupásu þegar myndin er svona löng 0.o :p
Svo var frí á föstudaginn núna og á fimmtudeginum fórum við Villi að borga fyrir AFS ferðirnar, erum að fara að klifra upp og stökkva niður 27 fossa á laugardaginn, svo í byrjun apríl er ferð til Isla Saona sem er víst voða falleg og eitthvað:)

(vá það er alltaf svona pálmatré á ská á svona strandarmyndum)

En eftir það fórum við heim til Villa, hringdum á Colmado og keyptum 2 lítra kók, snakk og vont Oreo kex og spiluðum Guitar Hero! Vá ég saknaði Guitar Hero.. :p
Og á föstudaginn var 17. júní Dóminíkana.. reyndar ekkert gert.. ég fór á ströndina með Jenny og vinum hennar, og kom heim hvítari en þegar ég fór út. Það var samt alveg ágætt:D
Gærdagurinn var samt bestur, við vöknuðum hálf sjö og lögðum af stað til Puerto Plata til að fara í Ocean World! Öll fjölskyldan fyrir utan bróðurinn, svona þriggja tíma akstur. Við stoppuðum í einhverri "sjoppu" á hraðbrautinni. Ekki hefði ég búist við þessu í Dóminíska lýðveldinu.. hvað þá einhver staðar á hraðbrautinni in the middle of nowhere. Ekki nóg með það að þetta var greinilega allt saman nýbyggt og hreinlegt og allt. Heldur fórum við á klóstið og sko þetta var svo geðveikt fanzy.. það var svona grjót í vaskinum og konan rétti mér pappír til að þurrka mér um hendurnar.. held að þessi sem skeinir manni hafi verið í veikindafríi;)
Þegar við komum í Ocean World sáum við endan á einhverju showi með höfrungum og sæljóni. Svo fórum við í einhverja sundlaug þar sem við fórum að snorkla með fiskunum, haha snilld!!! Svo fórum við Jenny að synda með höfrungum, vá það var svo svalt, fengum koss á kinnina, koss á munninn, faðmlag og dönsuðum merengue við þá. Svo gerðum við svona þar sem þeir komu sitthvoru megin við mann, þeir voru sko tveir, og maður greip í þarna dæmið sem er ofaná þeim, og þeir drógu mann. Og síðasta atriði var að við lágum á maganum á vatninu og þeir koma og ýta á sitthvorn fótin og synda hraðar og hraðar, svo maður lyftist upp.. vá það er erfitt að útskýra það.. en þetta var ótrúlega svalt!!
En annars vorum við bara að skoða restina af dýrunum, borða og fórum á ströndina þarna. Þeim finnst voða sniðugt að byggja semsagt gerviströnd inná alvöru ströndinni.. voða tilgangslaust eitthvað..:p En helgin var semsagt alveg frábær:p
Og ég tók einhverjar myndir en facebook virkar bara engan vegin.. vona að það komist í lag fljótlega:/

Annars svona til að deila með ykkur furðulegum matarsögum. Ég fékk semsagt sancocho um daginn, en ég held að það sé best að líkja þessu við kjötsúpu, kjöt og svo fullt af drasli. Ég var ein heima með þjónustustelpunni, ég skil ekki alveg hvernig hún ætlaðist til að ég borðaði þetta allt saman.. hún skammtaði semsagt á diskinn minn, eða diskANA mína.. súpan sjálf hefði verið nóg handa heilli fjölskyldu en svo fékk ég hrísgrjón OG avakadó í þokkabót.. jeremías á jólaskónum! En pointið  með þessari sögu var ekki það.. heldur var ég að borða minn disk í rólegheitunum þegar ég sé að disknum hjá henni er ekkert venjulegt kjöt.. heldur var hún að borða löppina af kjúklingnum.. mm namminamm..
Svo seinna í þeirri viku var ég hjá systur pabbans, og aftur sancocho, í það skiptið er amman með kjúklingafótinn.. ég skil bara ekki hvaða kjöt þau eru að borða af því, þetta er bara bókstaflega skinn og bein=/ en já kjötið mitt var nú ekkert mikið skárra.. ég fékk nautahala.. ekki alveg besta kjöt í heimi.. Ég var samt frekar pirruð þarna, þar sem ég var ekki einu sinni svöng fyrir, ég er alveg að tala um það að ég var pakksödd af því að ég borðaði rétt áður en við fórum. En svo skömmtuðu þau bara á diskinn minn án þess að spurja mig og það var ekkert lítið og svo annar diskur fullur af hrísgrjónum og avokadó .. þúst hrísgrjónin hefðu dugað mér þó ég væri að deyja úr hungri. En svo þegar ég gat ekki meir var geðveikt verið að pína mig til að klára og eitthvað.. þúst ég vil alls ekki vera ókurteis, en það eru alveg takmörk fyrir því hversu mikið kemst ofaní magan á mér, og ég borðaði alveg helminginn bara til að vera ekki ókurteis þrátt fyrir að ég hefði verið södd fyrir. Og mér var orðið svo illt að ég var við það að æla.
Eeen nóg af því.

Ég er örugglega að gleyma einhverju en ætla að segja bless í bili;)
-GuðrúnEydís


(Madonna að syngja um Dóminíska lýðveldið.. er mér sagt :)

01. mars 2009 klukkan 15:06
Guðrún Eydís
11 athugasemdir
12febrúar

furðulegt...

Heyriði já, ég áttaði á mig að ég er alveg hætt að blogga einu sinni í viku... æjæj...
En þó ég hafi nú ekkert eitthvað gríðalega mikið að segja ákveð ég að skella inn einu núna, svona ef einhverjum leiðist í vinnunni ;)

Já, auðvitað var Acropolis ferð í gær, en með smá breytingu þar sem við Villi tókum strætó í staðinn fyrir leigubíl. Ég er hálfsvekkt yfir því að það hafi bara gengið eins og í sögu, þurftum bara að bíða í 2 mín eftir honum, fórum inn á réttum stað og út á réttum stað og ég veit ekki hvað og hvað, en þá hef ég bara eeenga sögu til að segja ykkur. Ahh ég verð samt að benda á það að ég man eftir því að hafa verið að kvarta yfir því að gamli 23 (álftanesstrætó) hafi verið svo hávær að maður heyrði sjálfan sig ekki hugsa. En þessi strætó var svona þrefalt háværari. Það var samt magnað að borga bara 5 pesóa í staðinn fyrir 70 (á mann) til að komast í Acropolis, maður á alveg eftir að spara á því.

Ég hef komist á þá skoðun að ég elska Twilight, þökk sé Helgu Sædísi sem sendi mér bækurnar:D Eða fyrstu þrjár, var að byrja á þriðju bókinni í dag. Vona að ég finni bókabúð hérna einhverstaðar til að geta keypt síðustu bókina:p Ég er samt ekki sátt með bekkjarsystur mínar, sem hafa ekki lesið bækurnar btw, en þær eru eeeeeendalaust að tala um Twilight og hvað eigi eftir að gerast! ég vil EKKI vita það fyrr en ég kem að því.. ohh maður myndi halda að þær vissu að ég vilji það ekki (að halda fyrir eyrun og byrja að syngja ætti að vera augljóst merki).

Á morgun er svo eitthvað svona Marching dæmi, mæta í íþróttabúningnum og ganga  götur borgarinnar eitthvað, af því að þjóðhátíðardagurinn er 27.feb. (hérna væri tímapunktur þar sem ég segði ég ætla að taka myndavélina með og lofa að setja myndir inná facebook fljótlega, en ég er bara engan vegin viss um að ég geti lofað því.. bara af sökum leti)

Hmm hvað get ég sagt meira?!?

Já... AFS Kampið! það var fínt, og svona til að skilgreina það betur þá var það ÆÐI .. þegar við fengum frjálsan tíma. En hitt var eiginlega ekkert sérstakt.. Það var samt sundlaug þarna og svona. Og við íslendingarnir mættum auðvitað á svæðið með snakk, nammi, kók o.fl. Ohh ég var svo sátt í morgunmatnum þegar ég fékk þurrt frosted flakes!! (sko með því fyrsta sem ég geri þegar ég kem á klakann er að fara til Aldísar og fá mér kókópöffs með ískaldri mjólk!!!)

Annars já, það er plönuð ferð til La Vega á Carnaval á sunnudaginn með pabba mínum, en þetta er dóminíska lýðveldið.. svo það á ennþá eftir að koma í ljós hvort það verði af því.

Ohhh... Ég er ennþá ekki orðin vön því þegar þjónustustelpan er eitthvað að ganga frá fötunum mínum og þrífa inni hjá mér, spurning hvort ég venjist því nokkuð úr þessu:p

En þangað til næst, ég ætla að fara að halda áfram með Twilight - Eclipse =)
Bæjó


12. febrúar 2009 klukkan 19:14
Guðrún Eydís
10 athugasemdir
04febrúar

*Fyndin fyrirsögn á ensku með orðinu rainbow í*

Já, ég er ekki frá því að Dóminíkanar séu stórundarlegt fólk. Þessi nýjasta uppgötvun mín er komin til af því að ég fékk nýja tegund af safa í dag. Ég veit ekki hvort ég hef nefnt safana hérna eitthvað mikið, en þeir eru nánast undartekningarlaust mjög góðir. Alltaf búnir til úr ferskum ávöxtum og svona, og um að gera að setja vatn og nóg af sykri=) En í dag fékk ég samt ekki ávaxtasafa. Nei þetta er lygi.. það voru bananar í honum. en auk þess var eitthvað voða sniðugt að setja súkkulaðikex og köku. Ætli ég megi ekki þakka fyrir það að það var ekki sett vatn og sykur þó, bara mjólk.. að ég held. Mér finnst nú alveg takmörk fyrir því hvað megi setja ofan í blandarann.. Kom mér þó á óvart að þetta var ekkert mjög vont, var bara nokkuð gott.. en ég gat samt ekki alveg drukkið þetta allt saman, því þar sem ég er við nógu góða heilsu til að þurfa ekki að taka fæðu í gegnum rör, þá held ég haldi mig bara við það að þurfa að nota nokkra vöðva til að tyggja þann mat sem þarf að tyggja.. og þar sem tilhugsunin um það hvað var í glasinu gerði það að verkum að ég gat ekki hugsað mér að taka meira en þrjá sopa.

Annars er allt fínt að frétta. Mér hefur ekki tekist að brjóta fleiri bílhurðir, sem betur fer. Braut samt glas í dag =/ en það var alveg óvart (ekki það að bílhurðin hafi verið viljandi). Og ég get alveg fært nokkuð góð rök fyrir því að það hafi ekki verið mér að kenna. Þar sem glasið var nú eiginlega á gólfinu (ef að það hefði verið mitt glas sem brotnaði myndi ég fúslega taka á mig sökina, en þau voru með sentimetramillibili á gólfinu). 

Svo er Auður komin til nýrrar fjölskyldu, sem er alveg einstaklega hentugt! og aðalástæðan er sú að þau eiga BRAUÐRIST!!! Ef mér skjátlast ekki var ég eitthvað að tjá mig um daginn við Guðjón Bjarna á Facebook að mig langaði svo í ristað brauð með smjöri og osti. Sá draumur er við það að rætast =D Næst vantar mig bara piparostinn og pitusósuna, þar sem ég fór eitthvað að tjá mig um þetta við Jenny í dag og hún bennti mér á það að við eigum víst brauðgrill.. sem er aldrei notað.
Já en annar (og þó augljóslega ekki jafnmikilvægur) kostur við þessa fjölskyldu er að hún er mikið nær okkur Villa og er í þokkabót æði:)

En það er soldið síðan, 26.jan held ég, þar sem dvölin var hálfnuð.. bara 5 mánuðir þangað til ég stíg á klakann :) En í tilefni af þessu er AFS Mid-stay camp um næstu helgi. Hlakka geðveikt til að hitta restina af íslendingunum aftur.. það verður ekkert sofið í þessari ferð ! :D

Þau voru að búa til plan um uppvaskið í gær, ég á semsagt að vaska upp á þriðjudögum og föstudögum. Ég skil nú ekki alveg hvað þau voru að pæla að láta mig vaska upp. Alls ekki það að ég vilji það ekki, ég væri sátt með að gera það á hverjum degi þess vegna, en ég veit ekki alveg hvað þau eru að vonast eftir að eiga mörg heil glös þegar ég fer heim, ég er nú þegar búin að brjóta þrjú og Auður eitt. Held að eina ástæðan fyrir því að þau eiga ennþá alla diska heila er sú að þau nota oftar en ekki einnota pappadiska (og af þeim hef ég alveg brotið fleiri en einn, en það var viljandi í flestum tilvikum).

Ahh svo engar áhyggjur.. ég verð alveg ennþá sami klaufinn þegar ég kem aftur á klakann.. ég myndi segja stíg á klakann (hérna fyrir ofan var það meira svona metafor), en það er alveg líklegra að ég rúlli, fljúgi eða dett á klakann.

En ég veit ekki alveg hvað ég á að segja meira, held ég hafi ekki verið búin að segja frá baseball leiknum en það hafa örugglega einhverjir séð myndirnar frá því á facebook.. það var alveg mjög kúl og fórum svo á chimichuri stað eftirá.. einmitt einn af þessum stöðum sem heilbrigðiseftirlitið á Íslandi myndi ekki samþykkja.. og daginn eftir voru þau mjög hissa að ég væri ekki með í maganum. Skil nú ekki hver pælingin á bakvið það var að fara með okkur þangað og búast við því að ég fái í magann... Held nú samt að það hafi frekar verið mamman sem var með áhyggjur af því af því að hún var ekki á staðnum til að segja nei ekki borða þarna, förum frekar og fáum okkur pizzu. En mér fannst ég bara þurfa að prófa þetta allavega einu sinni, þar sem þetta er alveg ekta dóminískt.

Núna er ég búin að lesa þetta yfir og leiðrétta nokkrar stafsetningar- og málfræðivillur, eru samt án efa fleiri. Og nú ætla ég að fara að sofa.. eða reyna að sofna :p
Endilega kommentið.. mikið skemmtilegra að blogga þegar maður fær komment.

Sé ykkur í júlí;)
-GuðrúnEydís


04. febrúar 2009 klukkan 03:01
Guðrún Eydís
9 athugasemdir
28janúar

Nýjar myndir

Setti fullt af nýjum myndum á facebook ;)
28. janúar 2009 klukkan 02:14
Guðrún Eydís
2 athugasemdir
20janúar

My dream is to fly.. over the rainbow .. so high (8)

Já sælt veri fólkið. Ég hef nú ekki mikið að segja þessa dagana, er bara í skólanum og þessar hefðbundnu ferðir í Acropolis o.fl.

Húsið mitt er eins og spítali þessa stundina, amman fór í bráðauppskurð og kom svo hingað til að jafna sig, hún er með plástra og grisjur á maganum og svo af einhverjum ástæðum hálskraga. Svo tókst mömmunni að fótbrjóta sig og er núna komin í gifs. En það tíðkast víst ekki að nota hækjur.. hún er bara með svona göngugrind eins og gamla fólkið er alltaf með. Svo er snillingurinn ég komin með einhverja augnsýkingu.. þetta er ekki venjulegt..

Svo tókst mér að eyðileggja bílhurð um daginn.. og í þokkabót er hún í eigu fjölskyldunnar hans Villa. Ég vil samt meina að það hafi ekki verið mér að kenna, mótorhjólið kom bara out of nowhere..
neinei, ég eyðilagði hana ekki, en mótorhjólakallinn varð ekkert sérstaklega glaður, þetta var samt alveg alfarið honum að kenna, staðsetningin var þannig. Og hurðin lifði af ;)

En eins og ég segi hef ég eeekkert að segja...

og klukkan er alveg orðin dáldið margt.. bæjó

http://www.youtube.com/watch?v=jJrJSSOTPgc
20. janúar 2009 klukkan 03:12
Guðrún Eydís
4 athugasemdir

!Dóminíska lýðveldið!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Guðrún Eydís
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Kjötið í Fjarðarkaup
  • Um mig: Ég heiti Guðrún og geng í Menntaskólann í Reykjavík. Ég fer 21.ágúst sem skiptinemi til Dóminíska lýðveldisins og kem aftur í júní 2009.
  • Annað: msn: eydis90@hotmail.com simi: 001-809-804-4999

Leit